Fjallgöngur og styttri ferðir

Veistu hvert leiðin á að liggja þegar ferðast er á tveim jafnfljótum?
Fjallgöngur og styttri ferðir
Veistu hvert leiðin á að liggja þegar ferðast er á tveim jafnfljótum? |
Margs konar möguleikar
Áttu íbúð, bústað, hús eða herbergi sem gæti verið að afla tekna? |
Fullt hús af íslenskum mat
Býrðu til mat sem öðrum þykir gott að smjatta á og kyngja niður? |
Bjóddu aðgang að fegurð
Þekkir þú fallega staði til fjalla sem öðrum þætti gaman að skoða? |
Ferðaþjónustan í Íslandi er óumdeilanlega frjósamur jarðvegur fyrir frumkvæði í atvinnumálum og áhugaverður valkostur til að byggja upp fyrirtæki til framtíðar. Ferðaþjónustan getur þannig gefið mörgum tækifæri til að afla tekna og búa til lífsviðurværi. Mikilvægt atriði fyrir öll fyrirtæki í ferðaþjónustu er að koma sér á framfæri á netinu með öflugum og sannfærandi hætti. Gildir einu hvort um er að ræða gistingu, hestaferðir, jeppaferðir, matsölu, gönguferðir, hellaskoðun, skipulagðar ferðir, rútuferðir, stuttar ferðir, hálendisferðir eða annars konar þjónustu sem fyrirtækin ætla að bjóða ferðamönnum. Flestir erlendir ferðamenn með áhuga á Íslandi byrja að leita að upplýsingum á netinu. Þegar fyrirtæki býður fram þjónustu til ferðamanna er ákaflega mikilvægt að geta komið á viðskiptum ef áhugi vaknar hjá þeim sem skoða þjónustuna. Mikilvægt að hægt sé að panta og staðfesta tíma.
Þetta er hægt að gera með öflugri Drupal vefsíðu frá Emstrum vefsíðugerð. Vefsíðu og vefhönnun sem er sniðin að þörfum ferðaþjónustunnar á Íslandi. Sniðin að fyrirtækjum hvar sem er á landinu sem ætla að taka þátt í þeirri atvinnuuppbyggingu sem ferðaþjónustan er. Á þessari vefsíðu er hægt að skoða alla möguleikana, skoða myndbönd um uppbyggingu og notkun síðunnar, skoða hvernig kerfið virkar, skoða kostnaðinn við uppsetningu og frágang og senda fyrirspurnir. Ef þú ert að íhuga nýtt fyrirtæki eða nýja vefsíðu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu er upplagt að skoða þennan möguleika mjög alvarlega.



Í allri atvinnustarfsemi í dag gegnir vefsíðan veigamiklu hlutverki. Vefsíðan er ekki aðeins andlit fyrirtækisins heldur er hún oftar en ekki þýðingarmesta markaðssetningartækið. Vefsíðan getur líka verið meira. Vefsíðan getur verið stjórntæki sem heldur utanum samskipti við viðskiptavini. Til dæmis með því að taka við bókunum, taka við greiðslum, halda utanum bókanir og lausa tíma í ferðum og gistingu. Með því að skipuleggja vefsíðuna vandlega ís samhengi við viðskipti fyrirtækisins getur vefsíðan ekki aðeins aflað viðskipta heldur og sparað mikinn tíma með því að halda utanum mikilvæga þætti í starfseminni.

Drupal vefsíða: Emstrur